Reglugerð (ESB) nr. 1086/2011 (Salmonella í nýju alifuglakjöti).
(1402037)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
05.05.2014 | 48. fundur utanríkismálanefndar | Reglugerð (ESB) nr. 1086/2011 (Salmonella í nýju alifuglakjöti). Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um reglugerð (ESB) nr. 1086/2011, er varðar salmonellu í nýju alifuglakjöti. Síðast hafði málið verið til umfjöllunar hjá nefndinni 13. febrúar 2014, undir dagskrárliðnum um fund sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014. |
13.02.2014 | 25. fundur utanríkismálanefndar | Reglugerð (ESB) nr. 1086/2011 (Salmonella í nýju alifuglakjöti). Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti, Eggert Ólafsson og Halldór Runólfsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Hildur Traustadóttir frá Félagi kjúklingabænda, Jón Magnús Jónsson frá Reykjabúinu og Matthías Guðmundsson frá Reykjagarði. Fjölluðu gestirnir um reglugerð (ESB) nr. 1086/2011 (Salmonella í nýju alifuglakjöti) og svöruðu spurningum nefndarmanna. |